Um Hraunsnef

Um Hraunsnef

toesJörðin. Hraunsnef liggur við þjóðveg 1 sem er 4 km norður af Bifröst. Fjallið Hraunsnefsöxl liggur þvert á jörðina.

Á sveitahótelinu eru 10 herbergi. Öll eru herbergin með sér inngangi, þau á annari hæð með glæsilegt útsýni úr hverjum glugga.
Herbergin bera nöfn Ása úr Norrænni goðafræði en eru innréttuð hvert í sínum stíl. Á herbergjunum eru sér baðherbergi með sturtu, hárþurrku, sléttujárni, baðsloppum og inniskóm svo hægt sé að njóta lífsins í húð og hár.

Við bjóðum uppá tvö 15 fm og eitt 25 fm smáhýsi þau eru útbúin með sér klósetti, sjónvarpi og eldhúskrók. .

Heitir pottar eru stað settir niður við bæjarlækinn, þar er þó ekki sturta og búningaaðstaða en öll herbergi og smáhýsi eru með góðri aðstöðu svo hægt sé að fara í sturtu á eftir.

Á leiksvæði fyrir börn er sandkassi, borð og bekkur, róla, vegasalt, trampólin, tjörn með gúmmíbátum og fótbolta völlur. Auk allra þeirra ævintýra sem náttúran býður upp á. .


Við erum hér


mapmap_zoom