logo

book no

facebook2_en

Sveitamarkaður

Sveitamarkaðurinn er samansettur af vörum úr nær umhverfi okkar hér á Hraunsnefi.  Prjónaklúbburinn úr sem herfur hittst hér annan hvern miðvikudag hefur lagt sitt að mörkunum til að markaðurinn hafið getað orðið að veruleika.  Markaðurinn er alltaf opinn alla daga frá 17 - 21 á vetrartíma en frá 15 maí verður opið allan daginn frá 8:00 - 21:30

þær vörur sem komnar eru á markaðinn eru ýmist prjónavörur, bútasaumur, skartgripir, ýmsar vörur úr við s.s sleifar og smjörhnífar, auk þess sem aukið úrval er af matvörum beint frá bónda,  svo sem broddur frá glitstöðum, ís ostar, skyr og skyrkonfekt frá Erpstöðum, gúrkur frá Landi, andaregg frá Norðtungu, rababarachutney frá Helgavatni og egg frá íslensku landnámshænumun á Hraunsnefi.