Álfar
Álfar
Við sem búum að Hraunsnefi erum í miklu návígi við náttúruöflin. Til þess að geta miðlað þessum mikilfenglegum öflum fengum við í lið með okkur Erlu Stefánsdóttur. Erla er að vinna álfakort í tengslum við gönguhring þar sem hægt er að upplifa fjölbreytileika náttúrunar.
Fossbúar
Fossabúar á Íslandi eru kvenverur utan 3ja fossa, sem eru gamlar karlverur, sem eru í Dettifossi, Glanna,í Norðurá Borgarfirði og Öxaráfossi á Þingvöllum. Ef þú sest hjá fossi þá skaltu hlusta og finna. Hvað segir fossinn þér? Dvergar búa í holtbörðum eða hrauni. Karlar búa einir og kvenverur sér. Þeir eru alltaf að bardúsa eitthvað.
Skrautleg hús
Jarðdvergar eða gnómar búa í stórum hópum, margar kynslóðir saman. Þeir búa í skrautlegum húsum, útskornum og skrautmáluðum.
Fíngerðir og litríkir
Álfar geta verið nokkrir millimetrar upp í fleiri hundruð metrar. Þeir álfar sem búa á Hraunsnefi eru fíngerðir og litríkir. Huldufólk líkist mannfólkinu, vingjarnlegt og notalegt.
Einbúinn í nefinu
Einbúinn í hraunsnefinu er 300-500 ára gamall og er verndari síns landsvæðis. Langitesar í Hraunsnefsöxl eru bjartir og litríkir, háfættir og mjög hávaxnir. Þú getur haft samband við þá með því að tóna á þá.
(Erla Stefánsdóttir 25-29 ágúst 2004)
Komið, sjáið, upplifið og fræðist enn meir um hulduheimana sem umleika okkur