Afþreying
Afþreying:
Það er af nógu að taka þegar kemur að afþreyingu.
Við bjóum uppá léttan hópeflisleik fyrir stærri og smærri hópa
"Leitin að fjársjóði kattarinns" er léttur leikur sem tekur um klukkustund. Þátttakendur þurfa að vera færir um að geta gengið í náttúruni og geta lesið til þess að geta tekið þátt í leiknum.
Leikurinn byggir á sögu af Ketti sem bjó á Hraunsnefi á 19 öld. Kötturinn þótti svo góður til áheita að menn hétu á hann fjár. Kötturinn varð svo ríkur að þegar hann dó átti hann fulla kistu af gersemum sem talið er að enn leynist í nágrenni bæjarinns.
Leitin tekur um klukkustund og reynir á útsjónarsemi, hugmyndarflug þátttakanda. Farið er um slóðir og heima álfa og hulduvera þar sem menn upplifa ýmislegt.
Álfar
Við sem búum að Hraunsnefi erum í miklu návígi við náttúruöflin. Til þess að geta miðlað þessum mikilfenglegum öflum fengum við í lið með okkur Erlu Stefánsdóttur. Erla er að vinna álfakort í tengslum við gönguhring þar sem hægt er að upplifa fjölbreytileika náttúrunar.
Myndir eftir skynjunum Erlu Stefánsdóttir eru teiknaðar af Guðrúnu Sigríði Haraldsdóttur. Þessum myndur hefur verið komið fyrir í sínu rétta umhverfi á skiltum sem gestir geta skoðað á göngu sínni um svæðið
Nánar >>